Vefnámskeið um fjölmenningu og fordóma á Íslandi
Frami býður uppá vefnámskeiðið Mannflóran með Chanel Björk um fjölmenningu og fordóma á Íslandi. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum Mannflórunnar og fer meðal annars yfir:
Fjölmenningu á Íslandi: Hvað felst í fjölmenningarsamfélagi, hvernig íslenskt samfélag hefur þróast og hvaða mýtur og staðreyndir einkenna umræðuna.
Fordóma og hlutdrægni: Hvað fordómar eru, hvernig þeir myndast og hvernig ómeðvituð hlutdrægni getur haft áhrif á viðmót okkar og hegðun.
Frá hugsun til hegðunar: Hvernig hugmyndir og alhæfingar geta leitt til mismununar og hvernig hversdagslegir fordómar geta þróast í alvarlegri birtingarmyndir fordóma og mismununar.
Rasisma og öráreiti: Hvað rasismi er, hvernig hann birtist í dag og hvernig öráreiti og „saklaus“ ummæli geta haft raunveruleg áhrif.
Að tilheyra: Hvernig „við og hin“ hugsun verður til, hvaða áhrif hún hefur á einstaklinga og samfélag og hvernig við getum unnið gegn henni.
Hagnýt viðbrögð og ábyrgð: Hvað við getum öll gert í daglegu lífi og á vinnustöðum til að stuðla að virðingu, meðvitund og fjölbreytileika.
Námskeiðið er kennt á netinu og hentar einstaklega vel fyrir starfsfólk og stjórnendur, og sömuleiðis fólk sem vill efla meðvitund sína og finna leiðir til að eiga örugg og uppbyggileg samtöl um þessi málefni.