Sýnileiki skiptir máli

Ásamt því að halda fræðslur fyrir skóla og vinnustaði, framleiðir Mannflóran efni fyrir útvarp og sjónvarp, líkt og sjónvarpsþættina Mannflóran sem voru sýndir á RÚV um vorið 2023.

Eitt helsta markmið Mannflórunnar er að vinna gegn fordómum með því að auka sýnileika fjölmenningarinnar í íslensku dægurefni.